Laugardagur - 6.3 2010 - 22:30 - Ummæli ()

Bjarni Ben: Taka þarf Icesave upp á Alþingi áður en viðræður halda áfram við Breta og Hollendinga

bjarniben0310.jpgBjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í Sjónvarpi í kvöld þegar ljóst var að yfir 90% kjósenda höfðu hafnað Icesave-lögunum að taka þyrfti Icesave-málið upp á Alþingi áður en framhald yrði á viðræðum við Breta og Hollendinga um nýja samninga. Í sama streng tóku aðrir leiðtogar stjórnarandstöðunnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Birgitta Jónsdóttir.

Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra virtist brugðið þar sem hlýddi á þessar yfirlýsingar. Hún sagðist ósammála stjórnarandstöðunni um að Icesave-málið gæti beðið, en þannig túlkaði hún viðbrögð þeirra.

Leiðtogar stjórnarandstöðunnar fögnuðu því hve afdráttarlaus niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar væri. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kvað sérstakt fagnaðarefni hve kjörsókn hefði verið góð, þrátt fyrir að hún væri minni en í þingkosningunum síðustu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar