Laugardagur - 6.3 2010 - 08:00 - Ummæli ()

Megan Fox (23): Kynbomban segist bara hafa sofið hjá tveimur mönnum

Megan Fox er væntanlega ein eftirsóttasta stjarnan í Hollywood og þeir eru ófáir mennirnir sem láta sig dreyma um nótt með henni…

…en þrátt fyrir það hefur Megan ‘bara’ sofið hjá tveimur mönnum um ævina.

megan_fox_gq_big.jpg

Frá þessu greinir hún í viðtali við tímaritið Harpers Bazaar.

Hún segist jafnframt hafa megna andúð á því sem er kallað „einnar nætur gaman“ og að til þess að vilja sofa hjá þurfi hún að vera ástfangin af manninum.

„Enn sem komið er hefur þetta aðeins gerst tvisvar og þessvegna hef ég bara sofið hjá tveimur. Það eru núverandi kærastinn minn Brian Austin Green (úr 90210) og svo æskuástin,“… sem hún nafngreinir ekki.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar