Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, skorar á Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands að beita sér persónulega fyrir farsælli lausn í Icesave deilu þjóðanna. Lét forsetinn þessi orð falla í viðtali við BBC í morgun.
Vill Ólafur að Brown leysi þann hnút sem Icesave deilan er og hefur verið í með persónulegum hætti. Brown hafi sýnt leiðtogahæfileika á alþjóðasviði varðandi fjármálakreppu heimsins og hann geti sýnt slíkt á vettvangi deilu Íslands og Bretlands að sama skapi. Það er stærsta spurningin í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar að mati Ólafs Ragnars hvað Brown gerir nú.
Sjálfur var forsetinn afar ánægður með góða þátttöku í kosningunni og minnti á að aðeins einu sinni áður hefði jafn afgerandi hlutfall komið fram í slíkri atkvæðagreiðslu. Það hafi verið þegar greitt var atkvæði um stofnun lýðveldis. Þjóðaratkvæðagreiðslan hafi alls ekki verið marklaus eins og ráðamenn hafi viljað vera láta og þjóðin hafi nú sýnt að hún hafi sjálfstæðan vilja.
