Sunnudagur - 7.3 2010 - 10:00 - Ummæli ()

Jessica Simpson (29): Hundfúl yfir fitubollubröndurum

Jessica Simpson kvartaði sáran í sjónvarpsþætti hjá Opruh á dögunum og segir einu ástæðu þess að hún hafi komist í fjölmiðla árið 2009 vera þá að hún hafi bætt á sig.

simpson.jpg

„Sú staðreynd að ég varð fræg í fyrra fyrir að hafa bætt á mig 5 kílóum er fáránleg og ferlega sorgleg,“ sagði hin pattaralega og sæta Jessica í viðtali við Opruh sem er jú sjálf líka fræg fyrir að rokka mikið til í þyngd.

Jessica sagði að fátt særði hana meira en fitubollubrandararnir sem hún hafi mátt þola síðan hún tróð upp í Flórída þann 25. janúar í fyrra. Þar klæddist hún hálfgerðum „ömmugallabuxum“ og var með klunnalegt belti með dýramynstri um mittið en þessi múndering er nú orðin fræg í Ameríkunni.

„Svona hæðni myndi trufla hvaða konu sem er,“ sagði Jessica við Opruh og bætti því við að hún hefði samt engar áætlanir um að léttast í þá þyngd sem hún var í árið 2005 þegar frægðarsól hennar skein sem skærast.

„Ég er virkilega sátt við línurnar og mér líður vel!“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar