Sunnudagur - 7.3 2010 - 14:46 - Ummæli ()

Jóhannes Jónsson: Sendir fjölda þingmanna bréf. Segir þingmann grafa undan mannorði sínu

149177.jpgJóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, hefur sent fjórtán þingmönnum bréf þar sem hann fullyrðir að formaður viðskiptanefndar Alþingis, Lilja Mósesdóttir, stundi pólitískar ofsóknir gegn sér. Kemur Lilja sjálf af fjöllum en hafnar alfarið aðdróttunum Jóhannesar.

Fjallað er um málið á Vísi.is en þar segir að allir þingmenn í viðskiptanefndinni hafi fengið sams konar bréf þar sem Jóhannes kvartar undan formanninum og segir hana vega að mannorði sínu. Viðskiptanefndin hefur undanfarið fjallað töluvert um málefni Haga og telur Lilja sjálf líklegast að Jóhannes sé að vísa til þess í bréfi sínu en Lílja hefur viðrað þá skoðun sína að skipta eigi Högum upp því þannig gefist fleiri fjárfestum tækifæri að kaupa í fyrirtækinu.

Skilur Lilja þó ekki bréfið enda hafi ekki verið vikið einu orði að Jóhannesi í umfjöllun um Haga innan viðskiptanefndar. Í bréfinu biður kaupmaðurinn Lilju að hringja í sig. Það segist hún hafa gert en rangt símanúmer hafi verið gefið upp í bréfinu. Hyggst Lilja svara Jóhannesi formlega með bréfi.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar