„Ríkisstjórninni er þó ekki síður mikilvægt að horfast í augu við að á þessum krossgötum þarf hún að endurnýja erindið, á eigin forsendum, og halda áfram af endurnýjuðum krafti,“ skrifar Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og varaformaður flokksins á vef sinn í dag.
Dagur óttast að herbragð minnihlutans að tengja úrslit þjóðarkosningarinnar við almennt vantraust á stjórnvöld og kröfu um kosningar í kjölfarið geti tekist og biðlar til stjórnvalda að herða róður sinn til muna.
Að mati Dags er einfaldlega að duga eða drepast fyrir ríkistjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Stjórnin verði, með eða án samstarfs við aðra, að ná lendingu í Icesave málið enda séu líkur á að sú samstaða allra flokka um samstöðu við samningaborðið í málinu sé fyrir bí ef marka megi yfirlýsingar formanna stjórnarandstöðuflokkanna.
Telur Dagur upp nokkra punkta sem stjórnvöldum væri hollt að koma í gegn sem fyrst:
- Það þarf aukinn kraft í endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja. Það þarf að bæta réttarstöðu skuldara og tryggja gegnsæi með reglum um vinnubrögð bankanna.
- Það þarf að tryggja óskorað eignarhald þjóðarinnar á auðlindum, höggva á hnúta í atvinnumálum og setja fram nýja græna atvinnustefnu sem tryggir atvinnusköpun og nauðsynlegan vöxt. Atvinna fyrir alla er lykilverkefni.
- Það er ekki síður mikilvægt að innleiða örugga valkosti í húsnæðismálum þannig að næstu kynslóð bjóðist örugg langtímaleiga, búseturéttur og fjölbreyttari markaður – ekki aðeins 90% húsnæðislán eða myntkörfur.
- Að Icesave loknu þarf að skapa nauðsynlega ró og festu um efnahagsáætlun stjórnvalda og tryggja breiða samstöðu um samningsmarkmið og verklag í aðildarviðræðum við ESB.
- Síðan en ekki síst þarf að leiða umbætur í kjölfar heiðarlegs uppgjörs á grundvelli skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Við eigum að efna til stjórnlagaþings, setja lög um þjóðaratkvæði og persónukjör. Og stokka upp í stofnunum og ráðuneytum.
Endar Dagur pistil sinn á herkalli til sinna manna og Vinstri grænna. „Brýna nauðsyn ber til þess að þétta raðirnar í röðum ríkisstjórnarinnar. Jafnmikil nauðsyn er á að endurnýja kraftinn í stjórnarsamstarfinu. Þannig er það með allar stöður – líka þær sem virðast þrengstar við fyrstu sýn – í þeim geta falist stærstu tækifærin. Þau eigum við að nýta. Það er að duga eða drepast.“
Grein Dags í heild sinni hér.
