eyjan.is

Mánudagur 08.03.2010 - 07:17 - Ummæli ()

Þjóðaratkvæði um fiskveiðistjórn. Brautin rudd fyrir þjóðar-atkvæðagreiðslur, segir Jóhanna

fiskveidar2009.jpgJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, telur að leggja eigi fiskveiðistjórnunarkerfið í þjóðaratkvæðagreiðslu.

„Ég tel að næsta skref sé að hugleiða hvort ekki sé rétt að setja fiskveiðistjórnunarmálið næst í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Jóhanna í Fréttablaðinu í dag.

„Það deilumál hefur klofið þjóðina í marga áratugi og ríkisstjórnin hefur einsett sér að leiða þær deilur til lykta. Það færi vel á því að mínu mati, að niðurstaða sáttanefndarinnar, sem nú er að störfum um málið, yrði lögð fyrir þjóðina.“

Jóhanna telur mikilvægt að búið sé að ryðja brautina fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur almennt og það sé það jákvæða við atkvæðagreiðsluna nú. „Ég býst við að þjóðaratkvæðagreiðslur verði fyrir vikið algengari í framtíðinni og vonandi næst samstaða um það á Alþingi að setja lög um þennan rétt fólks. Fólkið á að hafa þennan rétt en ekki bara forsetinn. Það má hugleiða að ef fólkið fær þennan rétt í lögum, að forsetinn hefði hann þá ekki.“

Hlutverk sáttanefndar í sjávarútvegi er að endurskoða ýmis ákvæði í fiskveiðistjórnunarkerfinu og stuðla að sátt um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar. Ekki liggur fyrir hvenær nefndin mun skila áliti sínu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is