Þrír af lífvörðum Michaels heitins Jackson halda því fram að popparinn hafi haft kenndir til kvenna og að ekkert sé til í ásökunum þess efnis að hann hafi verið barnaníðingur.
Lífverðirnir hafa jafnframt í hyggju að gefa út bók sem mun bera heitið „Konunginum til varnar“ eða „In defence of the King“.
Einn af lífvörðunum þremur, Bill Whitfield, sagði í viðtali í sjónvarpsþættinum Good Morning America að Michael hafi oft fengið konur í heimsókn og rúntað með þeim á glæsikerrunni sem þeir óku. „Það var gardína á milli þannig að maður sá ekki það sem fram fór en maður gat alveg heyrt það,“ sagði Bill. „Ég er sjálfur faðir og verandi karlmaður-þá þekkir maður aðra karlmenn-þú skilur. Hann hafði sömu kenndir til kvenna og við gerum,“ sagði lífvörðurinn.
