Þriðjudagur - 9.3 2010 - 07:05 - Ummæli ()

„Órólega deildin“ í VG vill áfram viðræður um Icesave en heitir þó ekki stuðningi fyrirfram

vg-thingflokkur.jpgÞingmenn VG sem verið hafa mótfallnir Icesave-samningunum eða haft efasemdir um þá vilja halda viðræðum áfram með það að markmiði að ná sem bestri niðurstöðu. Fyrirfram vilja þeir þó ekki heita skilyrðislausum stuðningi við niðurstöðuna heldur segja að þingmenn og þingflokkar verði að meta hana þegar hún liggur fyrir.

Þetta segir í Morgunblaðinu í dag.

Viðmælendur blaðsins töldu meiri líkur en minni á því að stjórn og stjórnarandstaða myndu áfram reyna í sameiningu að leiða Icesave-málið til lykta. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður þingflokks VG, telur mikilvægt að þverpólitísk samstaða haldist um samningana.

Fulltrúar stjórnarandstöðunnar telja að ýmislegt þurfi að skýra frekar, áður en viðræðunum verður haldið áfram. Þeir segja að enn hafi ekkert komið fram um það hvort Bretar og Hollendingar séu tilbúnir að koma til móts við Íslendinga og deila ábyrgð á eftirstöðvum lánsins sem kunna að verða eftir árið 2016.

 


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar