Ofurkjafturinn Simon Cowell hefur fyrir löngu líst því yfir að hann ætli sér aldrei að eignast börn en nú ómar annað hljóð í strokknum.
Maðurinn sem er orðin fimmtugur hefur skipt um skoðun og segist núna tilbúinn en veit ekki hvort hann er kannski orðin of gamall. Hann hefur þó látið hafa það eftir sér að það verði eflaust hressandi að eignast börn og að þau muni koma til með að halda honum við „efnið“.
Simon er nú trúlofaður förðunarfræðingnum Mezghan Hussainy en hann vill ekkert gefa upp um það hvort brúðkaup sé á næsta leiti eða hvort það eigi bara að halda trúlofunarhringum að eilífu.
Hann vill heldur ekkert um það segja hvernig hann bað Mezghan að trúlofast sér. Í viðtali við Jay Leno segist hann hafa gert það upp úr svefni en sneri svo út úr og sagði að sér þætti óþægilegt að ræða sín einkamál opinberlega. Hann lét þó uppi að hringinn hafi hann keypt í London.
Það kemur eflaust engum á óvart að töffarinn skuli vera pínulítið bældur.
