Þriðjudagur - 9.3 2010 - 22:45 - Ummæli ()

Vistaskipti skopteiknara: Hættir á Morgunblaðinu og fer til starfa á Fréttablaðinu

halldorbald.jpgSkopamyndateiknarinn Halldór Baldursson er hættur á Morgunblaðinu og hefur verið ráðinn á Fréttablaðið.

Þetta er fullyrt í þættinum Kaffistofan á Pressunni í kvöld.

Á Pressunni segir að Halldór hafi um árabil teiknað skopmyndir af helstu málum líðandi stundar og náð svo langt í þeirri list sinni, að margir hafi talið myndir hans hafa ótvírætt fréttaskýringagildi í sjálfu sér. Hann hafi birt vikulega skopmynd í Viðskiptablaðinu um árabil, en síðan orðið fastur penni daglega hjá Blaðinu, síðar 24 stundum og hafi fylgt Ólafi Þ. Stephensen yfir á Morgunblaðið þegar Ólafur varð ritstjóri þar. Nú þegar Ólafur sé orðinn ritstjóri Fréttablaðsins sé fyrsta ráðning hans þar er að fá sinn gamla skopmyndateiknara til liðs við sig…

Halldór Baldursson er þar með farinn úr vistinni hjá Davíð Oddssyni og til starfa hjá fjölmiðlaveldi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar