Miðvikudagur - 10.3 2010 - 07:00 - Ummæli ()

Afmælisbörn dagsins: Osama bin laden, Ágúst Ólafur og Sharon Stone

10 mars: Í dag fæddust þau Ágúst Ólafur Ágústsson stjórnmálamaður, kynbomban Sharon Stone og hinn meinti hryðjuverkamaður Osama Bin Laden.

osama-bin-laden-1998-thumb.jpg

10. mars er 69. dagur ársins og þá eru 296 dagar eftir af árinu.

Þennan dag árið 1964 var fyrsti Ford Mustang-bíllinn framleiddur, árið 1967 varð stórbruni á horni Vonarstrætis og Lækjargötu í Reykjavík og brunnu þar þrjú hús til grunna og 10 mars árið 1988 héldu Sálin hans Jóns míns sína fyrstu tónleika í Bíókjallaranum við Lækjargötu.

Árið 1991 var ritstjóri Morgunblaðsins, Davíð Oddsson, kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með 733 atkvæðum á móti 651 atkvæði Þorsteins Pálssonar fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins.

1940 – Chuck Norris, bandarískur leikari.
1950 – Colin McGinn, breskur heimspekingur.
1957 – Osama bin Laden, hryðjuverkasamtaka súnní-íslamista.
1958 – Sharon Stone, bandarísk leikkona.
1964 – Játvarður Bretaprins.
1973 – Eva Herzigová, tékknesk fyrirsæta og leikkona.
1974 – Keren Ann, ísraelsk söngkona.
1977 – Ágúst Ólafur Ágústsson, íslenskur stjórnmálamaður.
1992 – Emily Osment, bandarísk leik- og söngkona.

sharon.jpg


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar