Miðvikudagur - 10.3 2010 - 14:29 - Ummæli ()

Héraðsdómur vísar frá kröfu SP Fjármögnunar. Málatilbúnaður allsendis ófullnægjandi

9bba32c4be4de79f8ed37b79cf6120c2_300×2251.jpgHéraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu fjármögnunarleigunnar SP Fjármögnunar um greiðslu eftirstöðva bílasamnings við einstakling en samningnum rifti SP Fjármögnun í desember 2012.

Er um mikinn áfellisdóm yfir SP Fjármögnun að ræða enda kemst dómarinn að þeirri niðurstöðu að málatilbúnaður þeirra sé svo ófullnægjandi að hann stenst ekki kröfur um meðferð einkamála.

Krafa SP í málinu var að viðkomandi einstaklingur greiddi tæpar sjö milljónir króna vegna vangoldinna gjalda vegna bílasamnings við fyrirtækið sem rift var í lok árs 2008. Dómarinn komst hins vegar að því að vart stóð steinn yfir steini í málatilbúnaði lánafyrirtækisins. Gerði dómarinn margvíslegar athugasemdir eins og sést í dómnum sjálfum.

Verður að fallast á það með stefnda að sundurliðun sé bæði ruglingsleg og óljós, og með engu móti unnt reikna út hvernig þessar fjárhæðir eru fundnar út eða hvaða áhrif þær hafi á skuld stefndu. Þá er ekki í stefnu að finna útskýringu eða sundurliðun á því hvernig gjaldfallin leiga er reiknuð út, við hvaða vísitölu er miðað eða hvað stefndu hafa greitt af samningsfjárhæðinni. Er því ekki ljóst hvernig stefnufjárhæðin er fundin.  Telst því málatilbúnaður stefnanda svo óljós og óskýr að hann fullnægir ekki kröfum e. liðar 80. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, til þess að efnisdómur verði lagður á málið.  Þegar allt framangreint er virt þykir stefnandi ekki hafa lagt málið upp með nægilega skýrum hætti og ekki lagt þann grundvöll að málinu, sem nauðsynlegur er til þess að efnisdómur verði á það lagður.  Þá þykir málatilbúnaður stefnanda vera mjög til þess fallinn að takmarka möguleika stefndu á að halda uppi vörnum í málinu.

Varð úrskurðurinn því sá að vísa málinu frá dómi og skal SP Fjármögnun greiða hlutaðeigendi málskostnað. Dómurinn í heild sinni hér.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar