Miðvikudagur - 10.3 2010 - 10:45 - Ummæli ()

Fleiri sækja menningarviðburði en íþróttaviðviðburði. Karlar áhugasamari um íþróttir en konur

tonleikar4.jpgFleiri sækja menningarviðburði en íþróttaviðburði og fleiri sækjast eftir umfjöllun um menningu og listir en íþróttir í fjölmiðlum.

Frá þessu er sagt í Fréttablaðinu í dag og vitnað í nýja könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á menningarneyslu Íslendinga. Niðurstöður hennar voru kynntar í Þjóðminjasafni Íslands í gær.

Fram kemur í frásögn Fréttablaðsins að könnunin var framkvæmd haustið 2009. Þátttakendur voru spurðir um þátttöku í mismundandi tegundum menningarviðburða síðastliðna tólf mánuði. Þeir voru einnig spurðir eftir hverju þeir sæktust helst í fjölmiðlum.

Flestir svarendur fóru á þessu tímabili í kvikmyndahús en yfir helmingur mætti einnig á aðra menningarviðburði. Tæp 38% mættu á íþróttaviðburði. Hlutfall þeirra sem sóttu íþróttaviðburð oftar en þrisvar á árinu var 68%; aðeins í hópi kvikmyndahúsagesta var hlutfallið hærra.

Þá segir í blaðinu að fleiri konur en karlar sæki leikhús, tónleika og listasöfn en kvikmyndahús, á sögustaði og menningarhátíðir en munurinn sé innan skekkjumarka. Hlutfallslega fleiri karlar en konur sækja hins vegar íþróttaviðburði, 48% á móti 29.

Fréttablaðið segir að athygli veki að 18% svarenda höfðu ekki lesið bók sér til ánægju á árinu. Hæst var hlutfallið í hópi ungmenna á aldrinum 18 til 29 ára, 30,2%, en í hópi karla sem ekki höfðu lesið bók var hlutfallið litlu lægra, 27%. Rúm 35% svarenda fóru aldrei á bókasafn á árinu. Rétt rúmur fimmtungur svarenda fékkst hins vegar við skriftir á netinu, til dæmis á bloggi eða öðrum heimasíðum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar