Mattel fyrirtækið er einna frægast fyrir að hafa framleitt Barbie dúkkuna sem hefur verið elskuð af ungum stúlkum í 51 ár.

Nú hefur fyrirtækið sett á markað svokallaðar Mad Men dúkkur, en þetta mun vera gert af því tilefni að núna er fjórða þáttaröð þessara vinsælu og verðlaunuðu sjónvarpsþátta væntanleg.
Nú geta aðdáendur þáttanna fjárfest í Joan, Roger, Don og Betty (af því þau eru myndarlegust) en ef eigendurna langar til að láta dúkkurnar reykja og drekka þá koma slíkir fylgihlutir ekki með.
Dúkkan kostar um 75 dollara stykkið eða tæplega 10.000 krónur.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Mattel framleiða sjónvarpsþáttadúkkur. Áður hafa komið á markað dúkkur sem eru byggðar á persónum í X-Files þáttunum og I love Lucy.
Það þykir vel við hæfi að framleiða Barbie dúkkur í stíl við Mad Men þættina en Barbie kom fyrst á markað í mars 1959 og fyrsti Mad Men þátturinn á að hefjast í mars 1960.
