Innlent - miðvikudagur - 10.3 2010 - 13:11

Ögmundur: Vík var á milli okkar Steingríms. En nú eru menn að setjast undir árar og róa yfir

ogmundurjonasson09.jpgÖgmundur Jónasson alþingismaður gefur sterklega í skyn í viðtali við vefmiðilinn Smuguna í dag að hann sé leið í ríkisstjórnina að nýju.  Hann staðfestir að fátt hafi verið á milli þeirra Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra um skeið og vík verið á milli vina. Yfir þá vík sé hins vegar hægt að róa og hann kveðst hafa trú á því að menn séu í þann veginn að setjast undir árar.

,,Við Steingrímur höfum ekki talað eins mikið saman upp á síðkastið og við höfum lengst af gert. Ekki gleyma því að við erum pólitískir samferðamenn og félagar til langs tíma og höfum átt mjög náið samastarf í gegnum tíðina. Nú hefur verið  vík milli vina. Yfir þá vík er hins vegar hægt að róa og ég hef trú á því að menn séu í þann veginn að setjast undir árar,“ segir Ögmundur. Hann staðfestir að þeir Steingrímur hafi nýlega átt með sér fund, en segir að sá fundur hafi fremur fjallað um það sem sameinaði þá en hitt sem þeir væru ósammála um.

Ögmundur segir í viðtalinu að hann sé vongóður um að niðurstaða fáist í Icesave-málinu fljótlega.

Um erindi sitt í ríkisstjórnina segir hann: ,,Það þarf að huga að skuldastöðu heimilanna, keyra niður vexti og henda verðtryggingunni. Bankarnir eru hinsvegar að hækka vextina, Það gera þeir, þrátt fyrir að Seðlabankinn hafi lækkað stýrivexti. Hvar er ábyrgðarkenndin á þeim bæ?“ spyr hann.

Ögmundur minnir á að hann vildi aldrei fara úr ríkisstjórninni. Hún hafi hins vegar hótað að sprengja sig í loft upp ef menn samþykktu ekki möglunarlaust það sem fyrir lá í  Icesave-málinu. Það hafi hann ekki verið reiðubúinn að gera. Hann hafi ekki farið skælbrosandi burt. „Ég vil að áhrifa minna gæti í stjórnarráðinu, ég hef aldrei farið leynt með það,“ segir Ögmundur í viðtalinu við Smuguna.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.