Vinna við sameiningu Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins er hafin í heilbrigðisráðuneytinu og er áætlað að ný sameinuð stofnun taki til starfa strax á næsta ári. Er sameiningin í samræmi við tillögur sérstakrar nefndar um breytta stjórnsýslu heilbrigðisráðuneytisins og á að spara töluverða fjármuni.
Er það mat nefndarinnar að þegar skarist störf þessara tveggja stofnana að einhverju leyti og þykir fullvíst að ýmsum samlegðaráhrifum megi ná fram með sameiningu. Þá er heldur ekki útilokað að gera einstök embætti sem nú eru innan veggja þessara stofnanna að sjálfstæðum einingum og er til að mynda litið á embætti sóttvarnarlæknis í því tilliti. Ekkert liggur fyrir með störf núverandi starfsmanna eða hvort þeim verður fækkað við sameininguna.
Skal við sameiningu fela nýrri stofnun frekari verkefni en þær hafa nú saman. Sjá skýrsluhöfundar fyrir sér að allt eftirlit með ummmönnunarstofnunum færist til þessarar nýju sameiginlegu stofnunar. Þannig megi bæti úr núverandi skorti á eftirliti án þess að stofna til þess sérstaka eftirlitsstofnun.
Skýrslan í heild sinni hér.
