Innlent - miðvikudagur - 10.3 2010 - 13:59

Sitt sýnist hverjum um undir- búning friðlýsingar Gjástykkis. Heildarmyndina vantar

img_04261.jpgSigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, telur að Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hafi farið of geyst fram með áætlun sína um undirbúning friðlýsingar Gjástykkis. Skorti enn talsvert á samráð við heimamenn vegna málsins en ekki síður liggi heildar rammaáætlun um nýtingu orkukosta ekki enn fyrir á landsvísu og á svæðinu við Gjástykki og Leirhnjúk sé eftir miklu að slægjast í því tilliti.

Bendir Sigmundur á að samkvæmt úttektum séu skýr og klár sóknarfæri hvað orkuna varði á svæðinu enda komi aðeins þrjú prósent allrar orku í landinu frá norðausturlandinu nú. Vill hann að nýtingarmöguleikar verði skoðaðir í þaula áður en til komi friðlýsing svæðisins.

Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, segir þvert á móti að það sé hluti af undirbúningi friðlýsingar að eiga orðastað við alla hagsmunaaðila sem að málinu komi og því sé ekki um það að ræða að ganga framhjá heimamönnum varðandi þessa ákvörðun.

Landsvirkjun hefur um tíma undirbúið tilraunaboranir á þessu svæði sem þykir algjörlega einstakt í allri veröldinni en Gjástykki og Leirhnjúkur eru hlutar af eldstöð Kröflu og ber náttúran og svæðið allt keim af því. Þykir víst að mikil orka sé á þessu svæði og á að ganga úr skugga um það með borunum.

Eyjan kannaði hvort hætt yrði við hugmyndir Landsvirkjunar um boranir með tilliti til ákvörðunar ráðherrans en ekki fengust skýr svör við því. Þykir það þó ólíklegt enda undirbúningur borana langt kominn og friðlýsing þessa svæðis taki langan tíma og jafnvel séu nokkur ár áður en það verði að veruleika.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.