Íslenskir lífeyrissjóðir eiga sem nemur tæpum 1800 milljörðum króna í sjóðum sínum í dag og hefur orðið töluverð hækkun á eignum milli ára. Nemur árleg hækkun frá fyrra ári 8,4 prósentum að teknu tilliti til verðbólgu. Hrein eign þeirra hefur því samkvæmt þessu aðeins dregist saman um tíu prósent að raunvirði frá því fyrir hrun.
Góðan fyrirvara skal þó hafa um upplýsingar þessar þar sem ekki allar tölur liggja enn fyrir um endanlegt tap sjóðanna vegna falls bankanna. Hefur greiningadeild Íslandsbanka tekið þetta saman og birtir í Morgunkorni sínu í dag.
Samkvæmt þeim tölum jókst hrein eign sjóðanna um ellefu milljarða króna í janúar mánuði einum saman og byggir sú hækkun á upplýsingum frá Seðlabanka Íslands. Jukust innlendar verðbréfaeignir um 16,7 milljarða meðan erlend verðbréfaeign dróst saman um 5,9 milljarða á sama tíma.
Virðist það koma greiningardeildinni á óvart hversu stöndugir lífeyrissjóðir landsins eru þrátt fyrir allt. „Þrátt fyrir þau miklu áföll sem dunið hafa á í íslensku hagkerfi eru lífeyrissjóðirnir enn ótrúlega stórir og nam hrein eign þeirra nú í lok janúar 120% af vergri landsframleiðslu síðasta árs.“