Fjögurra stunda verkfalli Félags íslenskra flugumferðarstjóra er lokið í bili en félagið boðar annað slíkt á föstudaginn kemur hafi samningar ekki tekist á þeim tímapunkti. Er þetta í fyrsta sinn sem verkfallsaðgerðum lýkur án þess að samningar hafi náðst en fundur í kjaradeilu þeirra hefst nú laust eftir hádegið.
Þó verkfallið hafi staðið stutt hafði það mikil áhrif á flugsamgöngur innanlands sem utan. Fimm vélum seinkaði verulega í utanlandsflugi og allmörg áætlunarflug röskuðust innanlands líka. Forsvarsmenn Flugfélags Íslands eru ósáttir við aðgerðir flugumferðarstjóra og það er líka Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, sem vill ganga svo langt að setja tímabundið bann á verkföll flugumferðarstjóranna og skjóta deilunum til Gerðardóms.
Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Icelandair, segir við Vísi.is í dag að þessar aðgerðir séu þegar farnar að hafa áhrif og draga úr bókunum erlendra ferðamanna hingað til lands.
Verkfallinu verður framhaldið á föstudaginn aftur og svo á mánudag, miðvikudag og föstudag í næstu viku líka takist ekki samningar.
Erum langt á eftir öðrum viðmiðunarstéttum
Í samtali við Eyjuna segir Ottó Garðar Eiríksson, formaður stjórnar FÍF, að deilurnar nú stafi af kröfum um almennar kjarabætur en vill ekki fara nánar í smáatriðin. „Raunin er sú að við erum langt á eftir öðrum stéttum sem við miðum okkur við eins og flugmenn svo ekki sé minnst á sömu stéttir í nágrannalöndum okkar en þar erum við tugum prósenta lægri í tekjum.“
