Fimmtudagur - 11.3 2010 - 07:00 - Ummæli ()

Afmælisbörn dagsins: Douglas Adams, Úlfar Linnet og Catherine Fulop.

11 mars: Þennan dag fæddust grínistinn Úlfar Linnet og rithöfundurinn Douglas Adams sem skrifaði Hitchhikers Guide to the Galaxy og fyrirsætan frá Venusuela, Catherine Fulop er 45 ára í dag.

douglasadams_wideweb__430×341.jpg

11. mars er 70. dagur ársins. 295 dagar eru eftir af árinu.

1444 – Donato Bramante, ítalskur arkitekt (d. 1514).
1899 – Friðrik 9. Danakonungur (d. 1972).
1920 – Kenneth Dover, breskur fornfræðingur.
1952 – Douglas Adams, rithöfundur (d. 2001).
1965 – Catherine Fulop, fyrirsæta.
1980 – Úlfar Linnet, íslenskur skemmtikraftur.
1982 – Thora Birch, bandarísk leikkona (American Beauty).

Þennan dag árið 1985 varð Mikhail Gorbatsjov leiðtogi Sovétríkjanna. Árið 1990 varð Litháen sjálfstætt ríki með Vitautas Landsbergis sem forseta. Sprengjutilræði var framið í farþegalest í Madrid þennan dag árið 2004 og 190 manns fórust og árið 2006 breytti Íslandsbanki nafni sínu í Glitnir banki hf en því hefur aftur verið breytt í Íslandsbanka.

thumb21.jpg


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar