eyjan.is

Fimmtudagur 11.03.2010 - 09:46 - Ummæli ()

Álfheiður afdráttarlaus: Engar breytingar á ríkisstjórninni á næstunni

alfheidur-ingadottir1.jpgVangaveltur um að Ögmundur Jónasson alþingismaður taki senn sæti í ríkisstjórninni virðast á ótraustum grunni reistar ef marka má ummæli arftaka hans í heilbrigðisráðuneytinu, Álfheiðar Ingadóttur, í morgunþætti Ríkisútvarpsins.

Álfheiður sagði að engin uppstokkun væri fyrirhuguð á ríkisstjórninni á næstunni. Í stjórnarsáttmálanum væri hins vegar gert ráð fyrir að ráðuneytum verði fækkað um mitt kjörtímabil. Í sumar eða um næstu áramót gæti verið komið að næsta skrefi í þeim efnum.

Ummæli Álfheiðar stangast á við fréttaflutning undanfarinna daga um að Ögmundur Jónasson taki sæti í ríkisstjórninni að nýju í kringum páskana, þ.e. eftir um það bil einn mánuð. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hefur sagt að breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni en hefur ekki nefnt neinar dagsetningar í því sambandi.

Sjálfur hefur Ögmundur Jónasson látið í ljós áhuga á að taka sæti í ríkisstjórn að nýju og nefnt að hann hafi áhuga á heilbrigðisráðuneytinu sem Álfheiður stýrir nú.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is