Bill Gates er ekki lengur ríkasti maður í heimi.

Microsoft mógúllinn hefur nú vikið úr hásætinu mikla og Mexíkaninn Carlos Slim fékk sér sæti en sá á um 500 milljónum fleiri dollara en Gates.
Bill Gates hefur verið ríkastur allra manna í um sextán ár og hagur hans eykst stöðugt. Jafnvel á síðasta ári hækkuðu bréfin í Microsoft um 50% og hagnaður Bills jókst í takt við það.
Listann yfir ríkasta fólk heims er að finna hjá tímaritinu Forbes en á honum er meðal annars að finna Opruh Winfrey, Donald Trump, Ralph Lauren og J.K. Rowling.

