Innlent - fimmtudagur - 11.3 2010 - 12:53

Enn hækka olíufélögin eldsneytið. Hver bensínlítri hækkað um 34 krónur frá áramótum

cl6.jpgFrá áramótum hefur hver lítri af bensíni hækkað um 34 krónur sé mið tekið af allra síðustu hækkunum olíufélaganna í morgun. Þá hækkaði allt eldsneyti og bensínið um fjórar krónur.

Kostar nú hver lítri í sjálfsafgreiðslu á algengum stöðvum í höfuðborginni eigi minna en 208 krónur. Skýringar á hækkuninni nú liggja ekki fyrir en íslenska krónan hefur styrkst örlítið upp á síðkastið og heimsmarkaðsverð á olíu almennt staðið í stað eða lækkað.

Sé mið tekið af fjögurra króna hækkun nú í viðbót við fimm krónu hækkun á eldsneyti fyrir rúmum mánuði síðan auk þeirra 25 krónu gjalda ríkisins á hvern lítra frá áramótum hefur lítrinn af bensíni þannig hækkað um 34 krónur á rúmum þremur mánuðum eða um 11,3 krónur hvern einasta mánuð á þessu ári.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.