Óvissuviðbúnaðarstig Almannavarna er enn í gildi hvað varðar skjálftavirkni í Eyjafjallajökli en töluverðar jarðhræringar hafa orðið þar í dag og urðu tveir stærstu skjálftar sem þar hafa mælst um nokkurn tíma urðu um miðjan dag. Mældust báðir yfir þrjú stig á Richter skalanum.
Hefur virkni undir jöklinum farið dvínandi jafnt og þétt síðustu dægur eftir að töluverðar hrinur mældust þar þann 5. mars en þá var virkjað fyrsta viðbúnaðarstig hjá Almannavörnum. Er sama óvissustig við lýði og áður en það einkennist af atburðarás sem er hafin og ætla má að geti leitt til þess að öryggi fólks og/eða byggðar sé stefnt í hættu.
