Flugumferðastjórar hafa aflýst verkfalli sem átti að hefjast klukkan sjö í fyrramálið. Fulltrúi þeirra tilkynnti Kristjáni Möller samgönguráðherra þetta á sjöunda tímanum í kvöld.
Ekkert verður því af því að lög verði sett til að stöðva verkfallið. Þingfundur á Alþingi þess efnis sem vera átti í kvöld hefur verið afboðaður.
