Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi vill að ekki verði heimilaðar neinar raflínuframkvæmdir í Heiðmörkinni eða annars staðar á vatnsverndarsvæðum Reykvíkinga. Deilt hefur verið um áform sem eru uppi um að leggja raflínur yfir svæðið vegna fyrirhugaðrar stóriðju í Reykjanesbæ.
Ólafur mun flytja tillögu um þetta á fundi borgarráðs Reykjavíkur í dag.
Í greinargerð með tillögunni segir borgarfulltrúinn:
Reykvíkingum sem öðrum landsmönnum verður sífellt ljósara hvílík sóun á sér stað við ósjálfbæra nýtingu hitavatnsauðlindarinnar, þar sem aðeins orkan vegna gufuafls en ekki heita vatnið sjálft er nýtt. Heita vatnið sjálft fer til spillis og gengið er á auðlind þess með ósjálfbærum og einstaklega óhagkvæmum og óábyrgum hætti. Gufuaflsorkan er síðan nýtt til að selja raforku á undirverði til erlendra álbræðslufyrirtækja, sem hafa gífurlegan hagnað af starfsemi sinni án þess að skila tilsvarandi auð eða gjaldeyri til landsins. Þessa ósvinnu verður að stöðva og tryggja þarf að íslensk fyrirtæki og íslenskur almenningur hætti að niðurgreiða raforkuverð til orkufrekra erlendra málmbræðslufyrirtækja á sama tíma og gengið er hættulega nærri hitavatnsauðlind höfuðborgarborgarsvæðisins. Tillöguflytjandi hafnar alfarið þeirri græðgi og skammsýni ásamt vanþekkingu á umhverfis- og orkumálum sem einkennir störf meirihlutans í borginni og fjárhagslega óstjórn hans á orkumálum Reykvíkinga, að ekki sé talað um virðingarleysi meirihlutans fyrir framtíðarhagsmunum alls almennings á höfuðborgarsvæðinu. Of langt er þó gengið í þjónkun við erlent auðvald og mjög þrönga sér- og skammstímahagsmuni fáeinna íslenskra aðila, ef leggja á vatnsverndarsvæði Reykvíkinga í bráða hættu með stórframkvæmdum á borð við raflínulagnir yfir Heiðmörkina vegna t.d. óraunhæfra fyrirætlana um raforkusölu til fleiri álvera á suðvesturhorni landsins. Engar umhverfislegar eða efnahagslegar forsendur eru fyrir frekari orkusölu til orkufrekra málmbræðslufyrirtækja hér á landi.