Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir alrangt sem fram hafa komið í fjölmiðlum að lögreglan verði með sérstakan viðbúnað vegna útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en fastlega er búist við að skýrslan sú komi út á allra næstu dögum enda unnið að lokafrágangi hennar.
Komið hafa fram raddir sem vara við hugsanlegum viðbrögðum fólks í landinu við skýrslunni og er þá meðal annars vísað til ummæla formanns nefndarinnar. Páls Hreinssonar, að skýrslan flytji almenningi verstu fréttir sem nokkur þjóð geti fengið. Með tilliti til að nokkuð kraumar undir víða í þjóðfélaginu hefur meðal annars formaður Lögreglufélags Reykjavíkur vakið máls á að hugsanlega þurfi lögregla að undirbúa sig sérstaklega fyrir þann dag er skýrslan verður gerð opinber.
Segir lögreglustjóri við Eyjuna að allt tal um sérstakan viðbúnað sé næsta fráleitur og undrast spurningar þessu tengdu. Lögreglan verði við öllu búin eins og alltaf sé raunin og ekki sé viðbúnaður meiri en gengur og gerist hjá lögreglunni venjulega. Segir hann engan úr yfirstjórn lögreglu taka undir orð formanns Lögreglufélagsins varðandi ótta um læti eða uppþot og það sé ekki lögreglu að draga ályktanir um hvort undir kraumi í þjóðfélaginu eða ekki.
