Fimmtudagur - 11.3 2010 - 16:03 - Ummæli ()

Ódýr orka ekki meginatriði við að lokka hingað til lands fyrirtæki með gagnaver sín

rice_data_center06052007×300.jpgÓdýr orka er ekki meginatriðið þegar kemur að því að sannfæra erlend fyrirtæki að Ísland sé afbragðs kostur hvað rekstur gagnavera varðar. Átta mánaða gamalt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þjónustu og lausnum fyrir fyrirtæki sem hug hafa að reisa hér gagnaver fær yfir 500 fyrirspurnir í hverjum mánuði. Gangi allt eftir landar fyrirtækið nokkrum samningum á þessu ári.

Fyrirtækið sem hér um ræðir er Datacell sem er í helmingaeigu Íslendinga og Svisslendinga en eigandi íslenska hlutans er Ólafur Sigurvinsson sem á og rekur Kerfisþróun.

Segir hann með ólíkindum hve áhugi erlendra fyrirtækja sé mikill og á fastlega von á að skrifa undir samninga við nokkur smærri fyrirtæki um rekstur gagnvers hér á árinu. Útilokar hann ekki heldur að samningur náist einnig á árinu við stærra erlent og þekkt fyrirtæki.

Ódýr orka ekki aðalatriðið

Ólafur segir ódýra orku ekki meginatriðið varðandi gagnaver eins og margir vilji vera láta og segja undirstöðu þess að hér rísi gagnaver í framtíðinni. „Alls ekki. Mín skoðun er sú eftir samskipti við öll þessi fyrirtæki að ódýr orka skiptir auðvitað máli en svo lengi sem allar ytri aðstæður eru góðar er það samt nánast aukaatriði. Fyrirtækin eru fyrst og fremst að horfa til staðsetningar, tenginga við útlönd og síðan virðist skipta þau miklu máli og kannski mestu máli að gögn þeirra séu alfarið vernduð hér og hvorki yfirvöld né aðrir geti haft aðgang að þeim gögnum sem fyrirtækin geyma í gagnaverum sínum.“

Fullyrðir Ólafur að gangi eftir þær hugmyndir sem aðilar úr Wikileaks flokknum hafa mælt fyrir og íslensk stjórnvöld eru að skoða að gera Ísland að allsherjar griðastað fyrir gögn og upplýsingar þurfi vart að hafa fyrir því að fá hingað til lands fyrirtæki. Þau muni koma til okkar. „Ef það kæmist í lög gæti Ísland orðið eins og Sviss með bankana þannig að fyrirtæki gætu verið hundrað prósent viss um að gögn þeirra hér yrðu eins vernduð og hugsanlegt sé í heiminum. Það finnst þeim mjög eftirsóknarvert.

Leggja eigin sæstreng

Að sögn Ólafs kemur áhugi á að reisa gagnaver hérlendis hvaðanæva að úr heiminum. „Mest er af fyrirspurnum frá Asíu en einnig annars staðar frá í heiminum. Áhuginn er það mikill að við erum byrjaðir að undirbúa lagningu okkar eigin gagnastrengs og höfum fengið fjárfesti með það í okkur. Sá strengur mun liggja norðaustur gegnum Noreg og Rússland og þaðan til Asíu og svo til Bandaríkjanna. Við þurfum einungis að fullvissa okkur um að eftirspurnin sé fyrir hendi og þá leggjum við af stað með það verkefni.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar