Fimmtudagur - 11.3 2010 - 18:10 - Ummæli ()

Ríkisstjórnin kom saman og þingfundur boðaður vegna verkfalls flugumferðarstjóra

iceland-reykjavik-stjornarrad-1.jpgSkyndifundur var boðaður í Stjórnarráðshúsinu nú klukkan 18 þar sem ríkisstjórnin hyggst setja lögbann á verkfall flugumferðastjóra en sáttafundur þeirra í dag varð árangurslaus og ætla þeir aftur í verkfall í fjórar klukkustundir í fyrramálið. Þá hefur þingfundur einnig verið boðaður klukkan 19.30 til að afgreiða lögin. .

RÚV skýrir frá þessu en stjórnvöld og fjölmargir hagsmunaaðilar hafa verið afar ósáttir við framgang flugumferðastjóra undanfarna daga. Þykja kröfur þeirra óraunhæfar og þrátt fyrir nokkra samningafundi er ekkert að nást saman með deiluaðilum samkvæmt ummmælum formanns Félags íslenskra flugumferðastjóra.

Flugfélagið Iceland Express flýtti öllum áætlunarflugum sínum í fyrramálið vegna málsins en næsta fjögurra tíma verkfall er boðað milli 7 og 11 í fyrramálið. Annað slíkt átti sér stað í morgun og tafði allt millilanda- og innanlandsflug mikið.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar