Tvö kauptilboð bárust í sorpeyðingarstöðina Kölku í Reykjanesbæ og ákvað stjórn hennar í fyrradag að ganga til viðræðna við fyrirtækið Waste Energy Management ehf sem átti hærra tilboðið.
Frá þessu er sagt á vef Vikurfrétta.
Fram kemur að hitt tilboðið var frá Njarðtak. Sagt er að upphæðir tilboðana fáist ekki uppgefnar en samkvæmt áreiðanlegum heimildum Víkurfrétta hafi hærra tilboðið hljóðað upp á 1,3 milljarða en það lægra upp á 500 milljónir króna.
Waste Energy Management ehf er skráð í Reykjavík.
Ólafur Thordersen, forsvarsmaður Njarðtaks, staðfesti í samtali við VF þá upphæð sem Njarðtak bauð en sagðist ekki hafa heyrt af hinu tilboðinu þar sem það hefði verið trúnaðarmál.
„Ég bauð þessa tölu út frá rekstrarforsendum og tekjumöguleikum stöðvarinnar. Mér finnst mikilvægt að halda þessu fyrirtæki í heimabyggð og reyna að sækja fram í þessu árferði,“ sagði Ólafur.
Fram kemur að ákveðið var í haust að setja Kölku í söluferli en þá hafði Reykjanesbær samþykkt að segja sig úr rekstrarfélagi sveitarfélaganna um stöðina. Málefni Kölku höfðu um tíma verið bitbein milli sveitarfélaganna en bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ lögðu þunga áherslu á að rekstrarformi hennar yrði breytt.
Ekki hefur tekist að afla upplýsinga um eignarhald Waste Energy. Í Reykjanesbæ hafa verið uppi vangaveltur um að hátt tilboð skýrist af því að nýir eigendur hyggist ekki aðeins brenna sorp heldur jafnvel flytja inn efni til eyðingar.
