Fimmtudagur - 11.3 2010 - 17:55 - Ummæli ()

Úttekt Deloitte: Engar athuga- semdir gerðar við greiðslukorta- notkun yfirmanna VR

vr.jpgEndurskoðunarfyrirtækið Deloitte fann ekkert athugavert við notkun yfirmanna VR á greiðslukortum sem allir slíkir fá en fréttir þess efnis að fjöldi yfirmanna í VR hefðu eytt sjö milljónum króna með kortunum árið 2008 urðu tilefni úttektarinnar.

Hafa allir yfirmenn VR kreditkort til nota og þykir það með öllu eðlilegt til að greiða fyrir ákveðna vöru eða þjónustu í þágu VR. Fagnar stjórn VR þessum niðurstöðum en ætlar engu að síður að skerpa enn frekar á reglum um greiðslukortanotkun starfsmanna. Var tilkynning þessa efnis send fjölmiðlum í dag.

Var það Stöð 2 sem greindi frá því í síðasta mánuði að ýmislegt benti til að yfirmennirnir hefðu notað greiðslukort VR í einkaneyslu og var talan sjö milljónir króna nefnd í því sambandi. Deloitte fann ekkert slíkt eða nokkuð athugavert en kannaðar voru færslur yfirmanna þrjú ár aftur í tímann.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar