Föstudagur - 12.3 2010 - 07:00 - Ummæli ()

Afmælisbörn dagsins: Þórbergur Þórðarsson, Jack Kerouac, Ron Jeremy og Sigmundur Davíð.

12 mars: Tólfti mars er fæðingardagur margra rithöfunda en má þar meðal annars nefna stórskáldið íslenska Þórberg Þórðarsson og ameríska töffarann Jack Kerouac.

smjack-kerouac201.jpg

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er svo 35 ára í dag og Marta Nordal leikkona er fertug.

Þennan dag árið 1894 var Coca Cola selt á flöskum í fyrsta sinn. Hljómsveitin Hljómar gaf út sína fyrstu plötu með lögunum „Bláu augun þín“ og „Fyrsti kossinn“, hvort tveggja eftir Gunnar Þórðarson árið 1965. Þann 12 mars árið 1974 sæmdi Háskóli Íslands þá Gunnar Gunnarsson og Þórberg Þórðarson titlinum doctor litterarum islandicum honoris causa og árið 1977 var íslenska kvikmyndin Morðsaga frumsýnd.

12. mars er 71. dagur ársins. 294 dagar eru eftir af árinu.

1888 – Þórbergur Þórðarson, rithöfundur (d. 1974).
1953 – Ron Jeremy, bandarískur leikari.
1957 – Steve Harris, enskur tónlistarmaður (Iron Maiden).
1957 – Marlon Jackson, bandarískur söngvari (The Jackson 5).
1962 – Jón Bjarni Guðmundsson, íslenskur leikari.
1970 – Marta Nordal, íslensk leikkona. 40!
1975 – Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. 35!
1979 – Pete Doherty, tónlistarmaður (The Libertines og Babyshambles).
1985 – Bradley Wright-Phillips, enskur knattspyrnumaður.
1986 – Danny Jones, breskur söngvari (McFly).

thumb22.jpg


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar