eyjan.is

Föstudagur 12.03.2010 - 13:43 - Ummæli ()

Allt að sex milljón króna bætur til þeirra sem orðið hafa fyrir skaða á opinberum heimilum fyrir börn

breida.jpgRíkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun frumvarp forsætisráðherra um sanngirnisbætur vegna misgjörða á stofnunum og heimilum fyrir börn en forsætisráðherra kynnti frumvarpið fyrir fjölmiðlafólki nú fyrir stundu.

Þar er kveðið á um bætur til þeirra sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða af illri meðferð eða ofbeldi á tilteknum heimilum og stofnunum fyrir börn. Geta bætur hvers einstaklingar sem orðið hefur fyrir skaða í víðustu merkingu þess orðs numið allt að sex milljónum króna.

Verður frumvarpið þessa efnis sent þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna til frekari meðferðar og væntanlega lagt fram á Alþingi í næstu viku. Samkvæmt því geta bætur numið allt að 6 milljónum króna en við mat á því verður ekki einvörðungu litið til líkamlegra og sálrænna afleiðinga af vistinni heldur einnig félagslegra eins og missis tækifæra.

Náið samráð hefur verið haft við Breiðavíkursamtökin við vinnslu frumvarpsins og hefur meðal annars verið tekið tillit til sjónarmiða þeirra um erfðarétt barna vistmanna sem fallnir eru frá. Þá verður skipaður sérstakur tengiliður við fyrrverandi vistmenn sem munu aðstoða við kröfugerð á hendur ríkinu og leiðbeina um önnur úrræði sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á eins og varðandi menntun og endurhæfingu.

Erfitt er að áætla kostnað fyrir ríkið af bótagreiðslum þar sem rannsókn margra slíkra mála er ekki lokið. Í kostnaðarumsögn fjármálaráðuneytis er tekið það dæmi að ef 100 manns eigi rétt á bótum og hljóti meðalbætur þá verði kostnaður ríkisins 300 milljónir króna auk kostnaðar af starfi úrskurðarnefndar og málskostnaðar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is