Föstudagur - 12.3 2010 - 09:45 - Ummæli ()

Atvinnurekendur óánægðir. 11 þúsund störf hafa tapast. Vilja efla ferðaþjónustu og stóriðju

samtokidnadarins.jpgUm 300 stjórnendur úr íslensku atvinnulífi, stjórnmálamenn, fulltrúar sveitarfélaga, ríkisstofnana og verkalýðshreyfingar, sitja nú á fundi Samtaka atvinnulífsins um atvinnumál á Hótel Nordica. Mikillar óþreyju gætir meðal atvinnurekenda vegna þeirrar kyrrstöðu sem er á öllum sviðum framkvæmda í þjóðfélaginu. 

Vilmundur Jósefsson, formaður SA, setti fundinn og sagði þolinmæði fólks og fyrirtækja á þrotum. Grípa yrði til aðgerða í atvinnumálum. Hann lagði áherslu á að skera niður ríkisútgjöld enn frekar til að ná fram markmiðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Frummælendur á fundinum eru Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ . Vilhjálmur gerði sérstaklega að umtalsefni stefnumörkun SA, Atvinna fyrir alla, sem kynnt var á dögunum. Fram kom í ræðu hans að 11 þúsund störf hefðu tapast á síðustu tveimur árum, en hægt væri að skapa fjöldamörg ný störf, ekki síst í ferðaþjónustu og stóriðju.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar