Essasa Sue er orðin að jaðarmenningar fyrirbæri hjá íslenskum unglingum
Hún átti eflaust aldrei von á því að verða að Facebook stjörnu á íslandi en svo er raunin með hina nítján ára gömlu Essasa Sue sem býr í Malasíu.

Eyjan sagði fyrst frá Essasa Sue í desember í fyrra. Þá átti hún nokkra gamansama íslenska vini en sama dag og fréttin birtist stækkaði hópurinn og taldi um 300 manns.
Og gleðin hefur sannarlega haldið áfram.
Í dag á Essasa Sue um 4980 vini á Facebook auk aðdáendasíðu þar sem aðdáendur eru tæplega 4000 og þar á Essasa Sue í daglegum samskiptum þar við íslensku „pennavini“ sína.
Ef marka má nýjasta „relationship status“ hjá þessari ungu malasíumær þá á hún núna íslenskan kærasta, ungan mann sem heitir Sveinbjörn og býr á Húsavík. Það má þó efast um alvöruna í sambandinu þar sem Essasa Sue var í sambandi við annan íslending í síðustu viku.
Á Facebook síðunni hennar má svo lesa margskonar einkahúmor og grín sem endar yfirleitt á orðinu ‘essasú’ eða Essasa Sue.
En ekki hvað?



Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
