EFLA verkfræðistofa og Reitir fasteignafélag hafa skrifað undir samning um leigu á 3800m2 húsnæði í nýjum skrifstofugörðum Reita að Höfðabakka 9. EFLA sem er eitt stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins er nú með aðstöðu á fjórum stöðum í Reykjavík en mun sameina þær í eina starfsstöð í húsnæðinu að Höfðabakka. EFLA er auk þess með starfsstöðvar í Reykjanesbæ, Selfossi, Reyðarfirði og Akureyri og er aðili að ráðgjafar- og þróunarfyrirtækjum erlendis í sjö löndum. Nýju höfuðstöðvarnar munu hýsa um 160 starfsmenn en alls starfa um 220 manns hjá EFLU.
Guðmundur Þorbjörnsson framkvæmdastjóri EFLU segir að reksturinn muni eflast í nýju sérhönnuðu húsnæði. “Það hefur staðið til í nokkurn tíma að sameina starfsstöðvarnar í Reykjavík. Möguleikarnir sem okkur buðust í skrifstofugörðunum að Höfðabakka gerðu okkur kleift að sameina starfsstöðvarnar á hagkvæman og mjög svo hentugan máta.”
Viðar Þorkelsson forstjóri fasteignafélagsins Reita segir að leigusamningurinn við EFLU styrki verulega starfsemina að Höfðabakka. “Reitir eru að standsetja öfluga skrifstofugarða í hæsta gæðaflokki að Höfðabakka og því mikið ánægjuefni að EFLA skuli flytja höfuðstöðvar sínar þangað”.
Nú síðast var Háskólinn í Reykjavík þar til húsa, en áður var þar m.a. fyrsta starfstöð hátæknifyrirtækisins Marel. Fasteignafélagið Reitir stefnir að því að innrétta fyrir sína viðskiptavini samtals 25.000m2 af skrifstofu- og þjónustuhúsnæði sem samanstendur af stórum og smáum rýmum, frá 400 til 5000m2.
“Höfðabakki 9 hefur í gegnum tíðina hýst margskonar starfsemi sem tengist verkfræði og tækni. Það er því við hæfi að einn af okkar stærstu leigjendum á svæðinu verði verkfræðistofa sem viðheldur hefðinni”, segir Viðar.
Skrifstofugarðarnir að Höfðabakka eru þróunarverkefni Reita sem unnið er með áherslum á vistvænni byggð. Hönnun og framkvæmd endurbótanna taka þannig tilliti til orkunýtni, byggingarefna og heilsusamlegs umhverfis notenda, svo dæmi séu tekin. Framkvæmdirnar munu skapa 11 ársverk.
Guðmundur hjá EFLU segir að stofan sinni margvíslegum verkefnum sem tengist vistvænni byggð, og verði þau verkefni stöðugt mikilvægari. “Reitir hyggjast ráðast í verulegar endurbætur á húsnæðinu til að mæta okkar þörfum og er sú framkvæmd unnin með hliðsjón af kröfum um vistvæna vottun bygginga. Því er hér um mjög spennandi verkefni að ræða”.
