Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur boðað til fundar í dag þar sem kynna skal nýtt frumvarp til laga um sanngirnisbætur til handa þeim er orðið hafa fyrir einhvers konar misgjörðum á opinberum stofnunum og heimilum fyrir börn og hlotið skaða af.
Frumvarpið kynnir Jóhanna sjálf fyrir blaðamönnum síðar í dag en í því er kveðið á um að ríkið greiði svokallaðar sanngirnisbætur til handa vistmönnum sem telja sig hafa verið ranglæti beittir á stofnunum ríkisins fyrir börn gegnum tíðina. Á það meðal annars um heimili á borð við Breiðavík, Heyrnleysingjaskólanum, Kumbaravogi, Silungapolli, Jaðri auk Upptöku- og Unglingaheimilum ríkisins.
Hefur ítrekað verið kallað eftir slíkum bótum af hálfu margra er órétti voru beittir sem börn og er skemmst að minnast þess að ríkisstjórn Geirs H. Haarde bauð vistmönnum í Breiðavík bætur sem mörgum þeirra þóttu vera smánarlegar í samanburði við þær þjáningar og skaða sem af hlaust fyrir marga.
