Innlent - föstudagur - 12.3 2010 - 15:11

Forsvarsmenn fyrirtækis í borginni mega ekki trufla borgarfulltrúa. Brimborg fær enn engin svör

r__h_si_.jpgForsvarsmenn Brimborgar fá enn engin svör við síendurteknum fyrirspurnum sínum um mismunun borgaryfirvalda gagnvart fyrirtækinu varðandi lóðaskil. Fær fyrirtækið annaðhvort engin svör eða skilaboð þess efnis að trufla ekki borgarfulltrúa með erindi sínu eins og einn borgarfulltrúi hefur svarað fyrirspurnum fyrirtækisins.

Brimborg hefur um hríð óskað svara frá borgaryfirvöldum hvers vegna fyrirtækið fái ekki líkt og aðrir hafa fengið að skila lóð einni er fyrirtækið festi kaup á fyrir hrun en Reykjavíkurborg hefur heimilað fjölda fólks að skila aftur lóðum eftir að allt fór hér í baklás við hrun bankanna og efnahagslífsins í kjölfarið. Hefur fulltrúi samgönguráðuneytisins þegar staðfest að fyrirtækið eigi sama rétt á endurgreiðslu og aðrir en borgarfulltrúar virðast láta það sem vind um eyru þjóta.

Einhver vakning hefur reyndar orðið meðal kjörinna fulltrúa í borginni vegna málsins og hafa fulltrúar Samfylkingar sýnt mestan vilja til að leysa málið sem kostað hefur fyrirtækið verulegar fjárhæðir. Þá hefur Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna, sýnt málinu áhuga meðan annar fulltrúi sama flokks, Jórunn Frímannsdóttir, bað forsvarsmann fyrirtækisins vinsamlega að láta sig í friði vegna þessa máls.


Ekki eru leyfð ummæli við þessa frétt.