Föstudagur - 12.3 2010 - 09:05 - Ummæli ()

Rannsókn: Eingöngu nautakjöt í nautahakki. Sojaprótein ekki notað til að drýgja vöruna

nautahakk.jpgEkkert annað kjöt en nautakjöt er að finna í íslensku nautahakki sem selt er í búðum. Gagnstæðar fullyrðingar hafa því ekki við rök að styðjast. Þetta er niðurstaða gæðakönnunar sem Matís gerði fyrir Neytendasamtökin og Landsamband kúabænda.

Sagt er frá rannsókninni og niðurstöðum hennar á vefsíðu Neytendasamtakanna í dag.

Þar segir að í framhaldi af umræðum um gæði á nautahakki hafi Landssamband kúabænda og Neytendasamtökin ákveðið að gera gæðakönnun á þessari vöru. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðneytið styrkti verkefnið að hluta. Matís sá um framkvæmd könnunarinnar, sem náði til átta tegunda nautahakks.

Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:

1. Þrátt fyrir fullyrðingar um annað reyndist ekkert sýnanna innihalda aðrar kjöttegundir en nautakjöt.

2. Ekki fannst sojaprótein í neinum sýnanna, en því hefur einmitt oft verið haldið fram að kjötiðnaðarstöðvar drýgi nautahakk með sojapróteini.

3. Í sex sýnum var viðbætt vatn og í einu tilvikanna kom það ekki fram á umbúðum. Gjarnan er í slíkum tilvikum bætt við kartöflutrefjum. Fram kemur í skýrslu Matís að endurskoða þurfi reglugerð um kjöt og kjötvörur og taka bæði samtökin undir það. M.a. er bent á að reglugerðin sé óljós varðandi viðbætt vatn.

4. Það er skoðun Landssambands kúabænda og Neytendasamtakanna að ekki eigi að heimila að bæta öðrum efnum í nautahakk, án þess að slíkt komi skýrt fram í vöruheiti og innihaldslýsingu.

5. Í of mörgum tilvikum voru merkingar á umbúðum ekki í samræmi við gildandi reglur. Þessu verða kjötiðnaðarstöðvar að kippa í liðinn tafarlaust.

6. Í einu tilviki er nafngift vörunnar nautaveisluhakk. Matís bendir réttilega á að með slíkri nafngift sé gefið til kynna aukin gæði. Því er óeðlilegt að í slíka vöru séu notaðar kartöflutrefjar.

7. Í tveimur tilvikum reyndist fituinnihald meira en gefið er upp á umbúðum. Slíkt er að sjálfsögðu óásættanlegt enda varðar það við lög.

Það er niðurstaða skýrslunnar að flestir þættir sem kannaðir voru varðandi nautahakk séu í lagi, þó eru nokkur atriði sem þarf að laga nú þegar. Þessar niðurstöður leysa opinbera eftirlitsaðila ekki á nokkurn hátt frá þeirri skyldu sinni, að sjá til þess að ákvæði laga og reglna um matvæli, sem og aðrar neysluvörur sé framfylgt.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar