Að mati lögmanna sem Eyjan hefur átt orðastað við að undanförnu er ólíklegt að Hæstiréttur taki fyrir mál tengt gengislánum fyrr en í fyrsta lagi með haustinu. Talsmaður neytenda leggur nú lóð sín á vogarskálarnar vegna þessa og býst hann ekki við slíkri fyrirtöku fyrr en í árslok. Óvissa verði því áfram um gengislánin umdeildu út þetta ár hafi hann rétt fyrir sér.
Greinir Gísli Tryggvason, Talsmaður neytenda, frá áhyggjum sínum á vef embættisins en gengislán og deilur um þau heyra undir hans embætti sem gæslumaður neytenda í landinu. Metur Gísli það svo að miðað við eigin reynslu og af samtölum við aðra og ekki síst hefur hann reiknað út þann meðaltíma sem það tekur fyrir einstakt mál að fara úr héraðsdómi fyrir Hæstarétt. Er sá tími 11,9 mánuðir að meðaltali og dregur Gísli því þá ályktun að Hæstiréttur taki slíkt mál ekki fyrir fyrr en í lok árs í fyrsta lagi.
Ekki þarf að velkjast í vafa um að niðurstaða í fyrsta slíka málinu fyrir réttinum yrði fordæmisgefandi fyrir þau öll en lögfræðingar sem Eyjan hefur haft tal af síðustu vikur og mánuði eru mun fleiri á þeirri skoðun að gengislán séu í raun ólögmæt. Þrjú slík mál hafa þegar farið fyrir héraðsdóm og voru dómar í tveimur þeirra misvísandi en í einu máli var frávísunarúrskurður.
