Þrjátíu og sjö sóttu um starf dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins sem auglýst var fyrir skömmu en umsóknarfrestur er nú útrunninn. Allnokkrir þekktir einstaklingar eru þar á meðal og vekur sennilega mesta athygli þáttastjórnandinn Egill Helgason sem sér um þættina Silfur Egils og Kiljuna á sömu sjónvarpsstöð.
Í auglýsingu um starfið segir að dagskrárstjóri i heyri undir útvarpsstjóra og starfi í umboði hans sem faglegur og rekstrarlegur yfirmaður dagskrár Sjónvarpsins. Um sé að ræða mjög áhugavert og krefjandi starf sem taki til eigin framleiðslu og útheimti mikil samskipti við innlenda og erlenda framleiðendur. Bæði innlend og erlend dagskrá Sjónvarpsins falli undir starfssvið dagskrárstjóra.
Helstu verkefni dagskrárstjóra eru markmiðssetning, mótun og framkvæmd dagskrárstefnu Sjónvarpsins, umsjón með innkaupum á innlendu og erlendu efni auk samningagerðar, ákvarðanir um innlenda dagskrárgerð og aðkeypta þjónustu, hugmyndavinna, undirbúningur og umsjón með framleiðslu á innlendu efni, faglegt eftirlit og gæðamat og gerð fjárhags- og rekstraráætlana og daglegur rekstur
Menntunar- og hæfniskröfur eru eftirfarandi: Háskólamenntun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi, starfsreynsla á ofangreindum sviðum, reynsla af stjórnunarstörfum, þekking og/eða starfsreynsla af framleiðslu og samningagerð, skipulags- og samstarfshæfileikar og jálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
Meðal annarra þekktra einstaklinga sem sækja um starfið má nefna dagskrárgerðarmanninn Felix Bergsson sem einnig starfar hjá stofnuninni eins og Egill. Þar má líka finna Þorfinn Ómarsson, Davíð Þór Jónsson, Lárus Ými Óskarsson, Maríönnu Friðjónsdóttur auk Sigurjóns Kjartanssonar.
Listinn í heild sinni:
1 Ágúst Héðinsson
2 Árdís Ýr Pétursdóttir
3 Ásdís Olsen
4 Björg Jónsdóttir
5 Björn Þórir Sigurðsson
6 Davíð Þór Jónsson
7 Dyah Anggraini
8 Egill Óskar Helgason
9 Erna Ósk Kettler
10 Felix Bergsson
11 Guðrún Helga Jónasdóttir
12 Gunnar Gunnarsson
13 Gunnlaugur Þór Pálsson
14 Halldóra Eldon Sigurðardóttir
15 Hallmar Sigurðsson
16 Hallur Hallsson
17 Haukur Hauksson
18 Heimir Jónasson
19 Hólmgeir Baldursson
20 Ingibjörg Eðvaldsdóttir
21 Jóhanna Jóhannsdóttir
22 Karl Haraldsson
23 Lára Magnúsardóttir
24 Lárus Ýmir Óskarsson
25 Lovísa Óladóttir
26 Maríanna Friðjónsdóttir
27 Maríus Þór Haraldsson
28 Marteinn Þórsson
29 Rebekka Rut Borgarsdóttir
30 Reynir Þór Finnbogason
31 Sigurður Sigurðsson
32 Sigurjón Kjartansson
33 Úlfur Helgi Hróbjartsson
34 Viðar Garðarsson
35 Vigdís Arna Þuríðardóttir
36 Þorfinnur Ómarsson
37 Þorsteinn Halldórsson