Föstudagur - 12.3 2010 - 11:03 - Ummæli ()

Netið 2010 í Smáralind um helgina: Kynntar nýjungar og möguleikar sem netið býður upp á

netid2010.jpgMargir munu vafalaust leggja leið sína í Smáralindina um helgina en í Vetrargarðinum þar verður haldin sýningin Netið 2010 . Sýningunni er ætlað að fræða almenning um þær nýjungar og möguleika sem netið býður upp á.

Skipuleggjendur sýningarinnar vinna nú hörðum höndum að undirbúningi, en þar verður meðal annars svipt hulunni af ýmsum spennandi tækninýjungum.

„Þetta er vettvangur fyrir fyrirtæki til að kynna nýjungar, þjónustu og möguleika sem eru í boði á íslenskum netmarkaði. Það er ótrúlega margt áhugavert að gerast í þessum málum hjá okkur,“ er haft eftir Davíð Sigurðarsyni, verkefnastjóra hjá Silent Company sem skipuleggur sýninguna, í fréttatilkynningu sem barst í morgun. „Fjölmörg fyrirtæki munu mæta á svæðið og kynna bæði vörur og þjónustu – allt frá vefsíðum og hönnun til upplýsingaveita og viðskipta“

Í tilkynningu sýningarmanna segir að internetið sé vaxandi þjónustu-, samskipta- og viðskiptamiðill þar sem öryggi og traust milli neytenda og þjónustuaðila sé mjög mikilvægt. „Hér á Íslandi er netnotkun ein sú mesta í heiminum og eykst hún milli ára. Um leið fjölgar þeim sem kaupa sér vörur á internetinu eða nýta sér þjónustu í gegnum internetið,“ segir Davíð og bætir við að mikill vaxtarbroddur sé í netfyrirtækjum á Íslandi og spennandi að fylgjast með þróun þeirra, bæði fyrir sérfræðinga og áhugafólk.

Vefsíða sýningarinnar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar