Seðlabankinn stóð ekki vaktina. Bankar fóru offorsi í gjaldeyris- kaupum. Fóru gegn landi og þjóð
Gjaldeyrisviðskipti íslenskra banka fóru langt fram úr því sem eðlilegt getur talist síðustu mánuðina fyrir hrun þeirra og að óbreyttu hefði Seðlabanki Íslands átt að grípa þar í taumana. Það gerði Seðlabankinn ekki og horfi aðgerðarlaus á meðan bankarnir unnu jafnt og þétt gegn íslensku krónunni og þar með gegn landi og þjóð.
Þetta er gróflega sú niðurstaða sem Bjarni Kristjánsson, hagfræðingur og fyrrum gjaldeyrisskiptamiðlari, kemst að í viðamikilli skýrslu sem hann hefur selt áhugasömum að undanförnu. Bendir Bjarni þar á að síðustu tólf mánuðina fyrir bankahrunið hafi meginhluti hagnaðar íslensku bankanna verið að mestu hagnaður vegna stöðutöku gegn íslensku krónunni. Þannig hafi í raun verið tekin staða gegn þjóðinni allri enda féll krónan skarpt þennan tíma.
Eyjan hefur um tíma óskað nákvæmra upplýsinga, án árangurs, frá Seðlabankanum um hvaða fjármálastofnanir og í hvaða mæli hafi stundað gjaldeyrisviðskipti árið fyrir hrun. Hefur þá verið sérstaklega litið til þriggja tímabila, mars, júlí og september þegar sprenging varð á millibankamarkaði með gjaldeyri langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Veiktist krónan sérstaklega yfir sömu tímabil. Seðlabankinn ber við bankaleynd og hyggst ekki svara Eyjunni frekar.
Í skýrslu Bjarna er Seðlabankinn gagnrýndur harðlega fyrir sinnuleysi. Ekkert hafi verið aðhafst vegna stöðutöku gegn gjaldmiðli landsins og bankarnir komist upp með að fegra bókhaldið en almenningur í landinu fengið skellinn fyrir vikið. Það sé varla hlutverk Seðlabanka að vernda misgóða gjörninga bankastofnanna og standa hjá meðan ráðist er á þjóðargjaldmiðilinn fyrir opnum tjöldum. Það var hins vegar nákvæmlega það sem stjórnendur Seðlabankans gerðu.
Greint var frá mörgum fleirum athugasemdum Bjarna við framferði Seðlabanka og bankastofnanna annarra í Kastljósi RÚV í gærkvöldi.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
