eyjan.is

Föstudagur 12.03.2010 - 17:05 - Ummæli ()

Skattrannsóknarstjóri: Eigna- tilfærslur geta örugglega hamlað verulega að opinber gjöld heimtist

peningar.jpgEngin vafi er á því að hvers konar eignatilfærslur hvort sem er manna á millum eða milli landa hamlar því örugglega að skattar og önnur opinber gjöld heimtist með eðlilegum hætti.

Svo hljóðar svar skattrannsóknarstjóra við fyrirspurnum Eyjunnar en mjög bar á því rétt fyrir hrun bankanna og ekki síður strax í kjölfarið að fjölmargir einstaklingar í landinu fluttu eignir annaðhvort úr landinu alfarið eða á maka sína eða ættingja.

Skipta dæmi um slíkt þúsundum saman árið 2008 og má leiða getum að því að umræddir aðilar hafi vitað upp á hár að með slíku væri ekki aðeins væri með því verið að vernda eignir gegn hugsanlegu gjaldþroti heldur ekki síður koma í veg fyrir að skattayfirvöld fengju það sem skattayfirvöldum ber.

Segir skattrannsóknarstjóri, Stefán Skjaldarson, að mikil samskipti séu milli embættis hans og embættis sérstaks saksóknara. Embættin hafi meðal annars skipst á ýmsum gögnum en þó hafi engin formlega mál enn sem komið er skilað sér frá sérstökum saksóknara til skattrannsóknarstjóra. Segir Stefán ákveðnar ástæður fyrir því sem hann vill þó ekki fara nánar út í.

Aðspurður hvort mál tengd niðurfellingu lána séu inni á borði skattrannsóknarstjóra segir Stefán svo ekki vera. Hins vegar séu slík mál tengd öðrum málum sem til rannsóknar eru en niðurstöður liggi enn ekki fyrir í þeim.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is