Föstudagur - 12.3 2010 - 11:49 - Ummæli ()

Steingrímur J. Sigfússon: Tal um að stjórnvöld tefji fyrir upp- byggingu atvinnulífs kjaftæði

steingrimur-j-silfur1.jpgSteingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, virðist vera búinn að fá nóg af umræðum um að ríkisstjórnin standi í vegi fyrir uppbyggingu í atvinnulífinu. Svaraði hann slíkri gagnrýni harðlega á fundi með stjórnendum í íslensku atvinnulífi í morgun. Sagði hann allt slíkt tal tómt kjaftæði.

Smugan greinir frá þessu en umræddur fundur var haldin af hálfu Samtaka atvinnulífsins og sóttu hann um 300 manns í heildina úr ýmsum kimum atvinnulífsins.

Sagði þar formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, þolinmæði fólks og fyrirtækja á þrotum en fjármálaráðherra sagði þann söng enga stoð eiga sér í raunveruleikanum. Slíkt tal væri kjaftæði og að forystumenn í atvinnulífinu vissu mætavel hvers vegna erfiðlega gengi hjá atvinnulífinu að fá lánafyrirgreiðslu við þær aðstæður sem hafa verið uppi. Minnst einn forsprakki úr atvinnulífinu tók undir málflutning ráðherrans.

Í máli sínu á fundinum sagði Steingrímur mikið hrópað á virkjanir í neðri Þjórsá og jafnvel talað um tafir á þeirri framkvæmd. Ítrekaði fjármálaráðherrann að engar virkjanir séu áætlaðar á því svæði á næstunni og svo hafi aldrei verið. Þá sé enginn fótur fyrir því að orka þaðan sé eyrnamerkt álveri í Helguvík eins og margir virðist halda.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar