Úrslit úr prófkjöri sjálfstæðismanna í sveitarfélaginu Árborg liggja fyrir. Í efsta sæti varð Eyþór Arnalds, með 512 atkvæði í 1. sæti.
Í öðru sæti varð Elfa Dögg Þórðardóttir með 652 atkvæði í 1. – 2. sæti. Í þriðja sæti varð Ari Björn Thorarensen, hlaut 345 í 1.-3. sæti. Í fjórða sæti varð Sandra Dís Hafþórsdóttir, með 367 atkvæði í 1.-4. sæti. Í fimmta sæti varð Gunnar Egilsson, hlaut 441 atkvæði í 1.-5. sæti og í sjötta sæti varð svo Kjartan Björnsson með 473 atkvæði í 1.-6. sæti.
Alls kusu 948, á kjörskrá voru 1512 og kjörsókn því 63 prósent.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur 4 bæjarfulltrúa af 9 í bæjarstjórn Árborgar.
