Guðjón Arnar Kristjánsson hyggst ekki gefa kost á sér sem formaður Frjálslynda flokksins á landsþingi hans um næstu helgi. Kosið verður í allar trúnaðarstöður flokksins á landsþinginu.
Guðjón Arnar hefur verið formaður Fjálslynda flokksins frá 2003, en samkvæmt tilkynningu frá flokknum hefur hann lýst því yfir að hann gefi ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. Hann muni þó gefa kost á sér í miðstjórn.
