Kópavogi, Grundarfirði, Fljótsdalshéraði og Fjarðarbyggð mun á næstu dögum berast bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, sem óskar eftir upplýsingum um fjárhag þeirra. Fleiri sveitarfélög hafa fengið slíkar beiðnir frá eftirlitsnefndinni, en þessi fjögur eru enn til athugunar.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Ljóst er að ýmis sveitarfélög hafa skuldsett sig fram úr hófi í góðærinu í stað þess að safna í sjóði eða greiða niður skuldir. Á árabilinu 2000-2007 jukust tekjur sveitarfélaga úr 11,5% í 13,6% af vergri þjóðarframleiðslu.
Þrátt fyrir tekjuaukninguna voru sveitarfélögin í heild aðeins rekin með tekjuafgangi í fimm ár af þessum átta og er þau skiluðu tekjuafgangi var hann örlítill. Flest sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og einnig Reykjanesbær fóru t.a.m. rækilega yfir á rauðu ljósi í skuldasöfnun sé miðað við skuldir sem hlutfall af tekjum.
