Hin sextán aðildarríki evrusvæðisins hafa ákveðið að koma Grikklandi til aðstoðar og freista þess jafnframt að styrkja þannig evruna.
Fram kemur í Guardian í morgun að ríkin séu reiðubúin að veita Grikkjum lán, eða lánstryggingar, fyrir allt að 25 milljörðum evra, jafnvirði um 4.350 milljarða króna, takist stjórnvöldum í Aþenu ekki að endurfjármagna skuldir sínar uppá eigin spýtur. Þessi risa lánapakki dagar þó ekki til að rétta við skuldastöðu landsins, sem nemur um 55 milljörðum evra, eða um 9.500 milljarða króna í lok þessa árs. Grikkir ráðgera 4,8 milljarða evra niðurskurð ríkisútgjalda, til að freista þess að koma fjárlagahallanum úr 12,7 prósentum af landsframleiðslu niður í 8,7 prósent í ár. Þessar ráðstafanir hafa valdið miklum titrningi í Grikklandi, verkalýðsfélög hafa gripið til vinnustöðvana og almenningur mótmælir á götum úti einsog sjá má á meðfylgjandi mynd.
Þjóðarverjar hafa til þessa verið andsnúnir því að koma Grikklandi til bjargar með þessum hætti, en samkvæmt Guardian hafa þeir nú fallist á aðgerðirnar. Þá segir að leiðtogar evruríkjanna ætli að kynna breytt regluverk í kringum evruna í því skyni að hvetja til aukins aðhalds í fjármálum ríkjanna og styrkja gjaldmiðilinn.
Frétt Guardian hefur ekki verið staðfest af Evrópusambandinu. Á vef Ríkisútvarpsins kemur fram að Jonathan Todd, talsmaður framkvæmdastjórnarinnar, segi þetta ekki rétt. Hins vegar sé framkvæmdastjórnin reiðubúin að grípa til ráðstafana ef nauðsyn krefji. Unnið sé að aðgerðaáætlun vegna Grikkja.
